Góðan dag

vona að öllum líði vel ,nú er gaman að vera til var að koma frá London hafði það mjög gott þar var að versla inn fyrir búðina ,en það er alltaf svo gaman að koma heim það eru allir svo skemmtilegir hér á íslandi.London var líka frábær eins og venjulega þar er komið sumar og það er svo gaman hvað konurnar eru mikið í kjólum í englandi ,en það finnst mér að íslenskar konur ættu að taka til fyrirmyndar.Það er svo fallegt að sjá konur i sumarkjólum á góðum sumardögum.Mætið nú í mótor í kringlunni og fáið ykkur góðan flottan kjól fyrir alla góðu dagana sem við eigum í vændum. Annars er allt gott að frétta af mér ,en mig er farið að langa til að skreppa til malmö að hitta litla frænda minn hann er svo mikið krútt .Svo verður líka gaman að fylgjast með á laugardaginn með þeim Friðrik Ómari og Reginu Ósk þau voru mjög glæsileg á sviðinu í gær ,en kannski mætti reyna að koma Reginu aðeins framar á sviðið fyrr ,en það er kannski erfitt að breyta því með svona stuttum fyrirvara.vonandi á þeim eftir að ganga vel þau eiga það svo skilið.Ríkisstjórnin er eins árs og er að standa sig vel í nokkrum málum en betur má ef duga skal.Mér fannst frábær hugmynd hjá þessari hjúkrunarkonu á Akureyri ég man ekki hvað hún heitir en á eftir  að kynna mér það.Um að koma á þjónustufulltrúa hjá tryggingastofnun fyrir fólk með ólæknandi sjúkdóma ,en mér skilst að þau þurfi að berjast fyrir öllum sínum réttindum oft fárveik og langt niðri .sem er ekki skrýtið undir miklu álagi osvfr.Það er svo gaman að heyra í vel gefnu og skynsömu fólki ,vonandi kemur Jóhanna Sigurðardóttir þessu máli í framkvæmd,ef við höfum efni á að hafa forseta höfum við efni á þessu,en það er önnur saga.Eigið góðan dag !

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband